S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
26.8.2002 | 21:52 | BG
Stuðningsmannalið í Noregi
Íslenska landsliðið kom heim í gærkvöldi frá Noregi eftir að hafa lokið keppni á Polar Cup þar sem liðið lék þrjá leiki, gegn Finnlandi, Svíþjóð og Noregi. Það er gaman að segja frá því að á öllum leikjum liðsins átti liðið nokkra suðningsmenn á pöllunum, en í Noregi eru margir Íslendingar búsettir. Á meðal þeirra sem komu og studdu strákana voru knattspyrnumennirnir Ríkharður Daðason, Tryggvi Guðmundsson og Jóhann Guðmundsson sem allir leika við góðan orðstír í norska boltanum. Jóhann bauð síðan öllu liðinu á leik á laugardagskvöldinu þar sem lið hans Lynn vann góðan sigur. Jóhann lék reyndar ekki vegna meiðsla en Helgi Sigurðsson skoraði sigurmarkið í leiknum. Þá lét hinn geðþekki þjálfari Logi Ólafsson sig ekki vanta og sá Ísland vinna Finnland.
Fleiri kunnugleg andlit voru í stúkunni og mætti hinn síungi Tómas Holton með fjölskylduna ásamt Matthíasi Einarssyni, fyrrum leikmanni KR. Síðast en ekki síst var Guðni ,,Dunni" Ölversson í essinu sínu allt mótið og lifði sig vel inn í leikina. |