© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.11.2013 | 9:18 | Kristinn | FIBA
Breyting á fyrirkomulagi EuroBasket · Ólafur Rafnsson heiðursfélagi FIBA Europe
Stjórn FIBA Europe samþykkti á fundi nú á laugardaginn að breyta keppnisfyrirkomulagi úrslita EuroBasket eða Evrópukeppninnar frá og með árinu 2017.

Næsta mót verður áfram með sama sniði og hefur verið eftir tæp tvö ár eða 2015 í Úkraínu að hluta til þar sem skipulagning er langt á veg komin miðað við núverandi form keppninnar.

Breytingin sem farið verður í er sú að eftir riðlakeppni í fyrsta hluta mótsins verður farið beint í útsláttarfyrirkomulag í úrslitum en ekki í tvo milliriðla líkt og er í dag.

Á fundinum, sem var haldin hjá spænska körfuknattleikssambandinu í Madrid, var ákveðið einnig að framlengja starfssamning Kamil Novak sem framkvæmdarstjóra FIBA Europe til 2016. Einnig var ákveðið að gera Ólaf heitinn Rafnsson að heiðursfélaga FIBA Europe.

Miguel Cardenal Carro, íþróttamálaráðherra Spánar sótti fundinn og ávarpaði. Hann minntist sérstaklega á Ólaf Rafnsson og vottaði FIBA Europe og fjölskyldu hans samúð sína.

Einnig var tilkynnt hvaða lönd hýsa Evrópumót yngri landsliða í ár. Hægt er að sjá nánar um úthlutunina hérna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Sunnudagurinn 15. febrúar 2009 var mikil körfuboltahátíð en þá fóru fram úrslitaleikirnir í Subwaybikarnum. Þegar leikmenn liðanna voru kynntir í upphafi leiks þá hljóp með þeim ungur iðkandi frá félaginu. Það hefur verið mikil upplifun fyrir ungu iðkendurna að fá að hlaupa með hetjunum sínum út á völl en hér hleypur einn ungur leikmaðru með Lóu Dís Másdóttur, leikmanni Keflavíkur.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið