© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
11.9.2013 | 9:24 | Kristinn
EuroBasket 2013: Milliriðill E byrjar í dag
Í dag er komið að fyrstu þrem leikjunum í E-milliriðli á EuroBasket í Slóveníu. A og B riðlar sameinast í E-riðil. Liðin taka með sér stig úr riðlakeppninni gegn þeim liðum sem fylgja þeim áfram og leika gegn hinum þremur sem koma úr hinum riðlinum.

Lettland og Úkraína mætast kl. 12.30 að íslenskum tíma í fyrsta leik dagsins. Lettar komu gríðarlega á óvart með því að komast áfram í keppninni. Þeir komust á mótið með því að vera eitt af fjórum bestu 3. sætunum í undankeppninni fyrir 2 árum og unnu þrjá leiki í riðlakeppninni núna. Úkraína unnu fjóra leiki sem var einnig nokkuð óvænt. Bæði lið náðu þar með öðru sæti í sínum riðli.

Belgía og Serbía mætast kl. 15.45. Belgar stóðu sig vel með því að komast áfram en Serbar verða þeim erfiðir í dag.

Stórleikur dagsins er svo leikur Litháens og Frakklands kl. 19.00 í kvöld. Frakkar unnu fjóra leiki og Litháen þrjá í riðlakeppninni. Litháen er með 3 stig í riðlinum en Frakkar 4 og geta Litaháar jafnað franska liðið að stigum með sigri. Eitt stig er gefið fyrir hvern leik og annað fyrir sigur.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslandsmeistarar Breiðabliks 1995.  Aftari röð frá vinstri: Sigurður Hjörleifsson þjálfari, Guðrún Kristjánsdóttir, Ragnheiður Kristinsdóttir, Hrefna Hugósdóttir, Elísa Vilbergsdóttir, Unnur Henrysdóttir, Svana Bjarnadóttir, Hanna Kjartansdóttir, Hannes S. Jónsson varaformaður, Sævar Guðbergsson stjórnarmaður og Jóhann Árnason formaður.  Fremri röð frá vinstri: Hildur Ólafsdóttir, Erla Hendriksdóttir, Penny Peppas, Olga Færseth og Sólveig Kjartansdóttir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið