© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
 
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
8.8.2013 | 13:28 | Stefán | Landslið
Miðar og aðgönguskírteini/boðskort fyrir landsleikina
Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram fyrir landsleikina framundan.

Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum fyrir viðburðinn.

Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miða fyrir leikina í næstu viku í eigin persónu mánudaginn 12. ágúst á skrifstofu KKÍ á milli 14:00 og 16:00.

Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis:
Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst skrifstofu KKÍ á sama tíma (Á milli 14:00 og 16:00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða á báða leikina sem síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll frá kl. 18:00 í Laugardalshöll á undan leik Íslands og Búlgaríu sem og leik Íslands og Rúmeníu. Tölvupóstinn skal senda á kki@kki.is.

Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars:
„Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“

Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni á vef KKÍ - KKÍ.is
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Björgvin Rúnarsson kastar boltanum til að hefja leik Hauka og Njarðvíkinga þann 26. janúar 2006.  Það eru Egill Jónasson, UMFN, og Morten Szmiedowicz, Haukum, sem bítast um boltann.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið