S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
21.6.2013 | 16:00 | Kristinn | Landslið
Sjálfboðaliðar óskast fyrir landsleiki í júlí og ágúst
Hefur þú áhuga á körfubolta og langar þig til að vinna við undirbúning og framkvæmd á landsleikjum Íslands í Evrópukeppninni í haust? Ef svo er þá leitar KKÍ að hressum og áhugasömum sjálfboðaliðum á öllum aldri til hjálpa til og taka að sér ýmis störf í kringum komandi æfingaleiki gegn Dönum hér heima og tvo heimaleiki í Evrópkeppninni, bæði fyrir erlendu liðin sem og íslenska landsliðið. Um er að ræða meðal annars: - Aðstoð í kringum æfingar erlendra liða fyrir leiki - Starfsmenn í öll almenn störf á leikjunum sjálfum, moppur, gæslu, uppsetningu umgjarðar leiks, starfsmenn í sjoppu og í aðstoð í miðasölu. - Annað tilfallandi í kringum aðdraganda leikjanna til að mynda akstur og útréttingar Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir að senda helstu upplýsingar eins og nafn, aldur, GSM og netfang á kki@kki.is en einnig er hægt að hafa samband á skrifstofuna í s. 514-4100 fyrir nánari upplýsingar. Um er að ræða tvo leiki A-liðs karla og tvo leiki U22-ára liðs Íslands og Danmerkur (æfingaleikir) sem eru fimmtudag og föstudag 25. og 26. júlí og svo í framhaldinu leiki í undankeppni EuroBasket 2015 gegn Búlgaríu og Rúmeníu dagana 13. og 16. ágúst. Hægt er að bjóða fram aðstoð í hluta eða heild, ekki þarf að taka skuldbinda sig á alla leikina, öll aðstoð vel þegin. |