S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
29.5.2013 | 10:13 | Kristinn
Jón Arnór í undanúrslit á Spáni · Mætir Real Madrid
Zaragoza lagði Valencia 77:83 á útivelli í þriðja leik liðanna en Valencia vann fyrsta leikinn örugglega, Zaragoza vann annan leikinn eftir þrjár framlengingar og tryggði sér svo sæti í undanúrslitunum með sigrinum í gær á útivelli. Jón skoraði 13 stig í leiknum á 21 mínútu sem hann var á vellinum, en samtals var hann með 32 stig í leikjunum þrem í einvíginu. Jón Arnór er fyrsti íslendingurinn sem fer í undanúrslit í bestu deild evrópu, ACB-deildinni á Spáni. Frábær árangur hjá Jóni Arnóri. Real Madrid lenti í efsta sæti í deildinni í ár og léku til úrslita í EuroLeague þar sem það hafnuði í 2. sæti eftir tap gegn Olympiacos en með liðinu leika sem dæmi spænsku landsliðsmennirnir og Evrópumeistararnir Rudy Fernández og Felipe Reyes. |