S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
23.6.2002 | 12:58 | óój
Rétt misstu af gullinu eftir frábæran leik gegn Albaníu
Það vara gaman að sjá til baráttu og liðsandans hjá íslensku stelpunum í síðustu tveimur leikjunum sem voru þeir langbestu hjá liðinu í ferðinni. Í báðum leikjum lenti liðið undir en kom sér aftur inn í leikina á miklum karakter, góðri baráttu og mikilli samheldni. Í leikslok í Albaníu-leiknum var klappað mikið fyrir íslenska liðinu enda höfðu þær íslensku strítt albönsku atvinnumönnunum ógurlega í úrslitaleiknum. Þær albönsku fögnuðu sigrinum innilega enda voru þær greinilega fegnar. Anna María Sveinsdóttir og Guðbjörg Norðfjörð léku sinn síðasta landsleik gegn Albaníu en þær tvær eru þær einu sem hafa brotið 50 leikja múrinn, Anna María lék sinn 55. leik og Guðbjörg þann númer 53. Stig íslensku stelpnanna: Guðbjörg Norðfjörð 18 (10 fráköst, 4 í sókn), Helga Þorvaldsdóttir 11, Kristín Blöndal 10 (á 14 mín.), Kristín Björk Jónsdóttir 9, Hildur Sigurðardóttir 9 (6 stoðsendingar, 4 fráköst), Birna Valgarðsdóttir 8, Anna María Sveinsdóttir 7 (9 fráköst, 5 stolnir), Erla Þorsteinsdóttir 4, Signý Hermannsdóttir 3 (8 fráköst, 6 stoðsendingar, 4 varin skot). Svava Ósk Stefánsdóttir, Helga Jónasdóttir og Lovísa Guðmundsdóttir komu ekki inn á í leiknum. |