S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
20.6.2002 | 18:49 | óój
Þær albönsku sterkari á lokasprettinum
Íslenska liðið byrjaðì leikinn vel og þá sérstaklega Helga Þorvaldsdóttir sem gerðì 14 af 19 stigum liðsins í fyrsta leikhluta en eftir hann hafði íslenska liðið forustu 19-16. Albanía leiddi í leikhléi 36-38 en góð byrjun íslensku stelpnanna í seinni hálfleik skilaði átta stiga forustu, 52-44. En þá hófst þriggja stiga skotsýning albönsku stelpnanna, fyrst tvær í lok þriðja leikhluta sem hjálpuðu til að ná muninum niður í tvö stig, 55-53. Albönsku settu síðan niður fimm þriggja stiga körfur í fjórða leikhluta sem þær unnu 30-16 og leikinn þar með 71-83. Stig íslenska liðsins í leiknum: Helga Þorvaldsdóttir 20 (14 stig í fyrsta leikhluta, 4 fráköst, 3 stoðsendingar, hitti ur 7 af 14 skotum), Anna María Sveinsdóttir 13 (10 fráköst, 5 stoðsendingar), Birna Valgarðsdóttir 13 (5 fráköst, 4 í sókn), Guðbjörg Norðfjörð 12 (9 fráköst, 3 stoðsendingar), Kristín Björk Jónsdóttir 6, Hildur Sigurðardóttir 3 (7 stoðsendingar), Signý Hermannsdóttir 2 (8 fráköst, 4 varin skot), Kristín Blöndal 2. Svava Ósk Stefánsdóttir, Lovísa Guðmundsdóttir og Helga Jónasdóttir komu ekki við sögu í leiknum og Erla Þosteinsdóttir var frá vegna meiðsla sem hún hlaut í fyrsta leiknum. mt. Helga Þorvaldsdóttir var stigahæst gegn Albaníu. |