© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
19.6.2002 | 19:00 | ooj
26 stiga sigur á Möltu
Íslensku stelpurnar byrjuðu vel á Promotion Cup í Andorra en 26 sigur vannst í fyrsta leiknum gegn Möltu, 75-49. Anna María Sveinsdóttir var stigahaest íslensku stelpnanna með 17 stig auk þess sem hún tók 15 fráköst og gaf 5 stoðsendingar á aðeins 22 mínútum. Íslenska liðið varð fyrir áfalli þegar 5 mínútur voru eftir af 3ja leikhluta er Erla Þorsteinsdóttir meiddist illa á ökkla. Leikurinn var 50. landsleikur Gudbjargar Norðfjörð.

Íslenska lìðið byrjaði leikinn ekki vel og lenti undir 11-15 í fyrsta leikhluta en stelpurnar tóku sig þá á skoruðu sex síðustu stig fyrsta leikhluta. Þær unnu síðan annan leikhluta 23-2 og lögðu grunninn að öruggum sigri. Íslensku stelpurnar fengu harðar móttökur í síðasta leikhlutanum sem Malta vann 22-16 og minnkaði muninn í 26 stig í lokin. Grófur leikur Möltustelpna og mörg mistök kostuðu 17 tapaða bolta í leikhlutanum en sigurinn var samt löngu öruggur og næst mæta stelpurnar Albaníu á morgun klukkan 16:30. Íslensku stelpurnar vörðu 18 skot Möltu í leiknum og Signý Hermannsdóttir varði þau flest eða 6. Þá unnu íslensku stelpurnar fraköstin 55-41.

Stig Íslands í leiknum: Anna María Sveinsdóttir 17 (15 fráköst, 5 stoðsendingar), Hildur Sigurðardóttir 10 (6 fráköst, 5 stoðsendingar), Signý Hermannsdóttir 7 (7 fráköst, 6 varin skot), Kristín Blöndal 7, Kristín Björk Jónsdóttir 7, Erla Þorsteinsdóttir 6 (5 varin skot á 11 mínútum), Guðbjörg Norðfjörð 5, Helga Þorvaldsdóttir 4 (5 stoðsendingar), Svava Ósk Stefánsdóttir 4, Birna Valgarðsdóttir 4, Lovísa Guðmundsdóttir 4. Helga Jónasdóttir var sú eina af íslensku stelpunum sem ekki komst á blað.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
8.-10. flokkur stúlkna hjá Val að undirbúa sig fyrir leik á móti í Gautaborg í Svíþjóð. Valur vann leikinn 26-24. Liðið komst í b-úrslit á mótinu en gat ekki spilað úrslitaleikinn þar sem að ferðaskrifstofa liðsins gerði ekki ráð fyrir að liðið færi svona langt. Stelpurnar þurftu því að halda heim til Íslands áður en mótið kláraðist.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið