© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.2.2013 | 16:00 | Kristinn | FIBA
FIBA Europe: Leikmenn Ársins 2012
Leikmaður ársins · karlar
Hinn rússneski Andrei Kirilenko hefur verið valinn besti leikmaður ársins hjá FIBA Europe. Andrei hefur áður hlotið þennan titil en það var árið 2007.

Andrei lék með CSKA Moskvu á síðasta tímabili eftir að hafa leikið í 10 ár með Utha Jazz í NBA-deildinni. Í upphafi þessa tímabils snéri hann til baka og leikur með Minnesota Timberwolves.

Með CSKA fór hann alla leið í úrslitaleikinn í EuroLeague og var valinn leikmaður ársins í þeirri deild.

Með rússneska landsliðinu vann hann til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í London en það voru fystu verðlaun Rússlands í körfubolta frá lokum Sovétríkjanna á Ólympíuleikum.

Pau Gasol, LA Lakers og spænska landsliðinu, hafnaði í 2. sæti í kjörinu og Grikkinn Vassilis Spanoulis, Olympiacos, varð þriðji í ár.

Í kjöri besti ungi leikmaður ársins var það Litháinn stæðilegi Jonas Valanciunas sem var valinn bestur annað árið í röð.

Leikmaður ársins · konur
Celine Dumerc frá Frakklandi valinn best í ár. Franska landsliðið vann gull á Ólympíuleikunum í London þar sem hún var stigahæst í sínu liði og franska liðið til alls líklegt á Evrópumótinu í sumar þegar það fer fram á hennar heimavelli.

Í öðru sæti var Eva Vitecková frá Tékklandi og Becky Hammon frá Rússlandi.

Besti ungi leikmaður kvenna var valin hin úkraínska Alina Iagupova.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslandsmeistarar Hauka 2009
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið