S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
12.4.2000 | 18:08 | -
Ísland tapaði fyrir Litháen í hörkuleik
Leik Íslands og Litháen á Evrópumóti unglinga í Saarlouis í Þýskalandi er nú lokið. Litháen hafði fjögurra stiga sigur, 72-68, í hörkuleik. Að sögn Sigurðar Hjörleifssonar þjálfara íslenska liðsins þá áttu íslensku leikmennirnir í erfiðleikum með hávaxa Litháa sem höfðu yfirburði í fráköstum. Íslenska liðið hitti ekki vel í leiknum í dag, en baráttan var til staðar og með smá heppni hefði sigurinn getað lent okkar megin. Sigurður sagðist engu kvíða fyrir næstu leiki, íslenska liðið ætti góða möguleika í þeim öllum. Stig Íslands í dag: Hreggviður Magnússon 19, Helgi Margeirsson 11, Jón Arnór Stefánsson 10, Hlynur Bæringsson 10, Jakob Sigurðarson 8, Helgi Magnússon 6, Hjalti Kristinsson 2, Ómar Sævarsson 1.
|