S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
30.8.2012 | 16:36 | Stefán | Landslið
Miðar og aðgönguskírteini/boðskort fyrir landsleikina
Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum fyrir viðburðinn. Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sent tölvupóst á kki@kki.is næstkomandi föstudag milli 14.00 og 16.00 og óskað eftir miðum fyrir leik Íslands og Slóvakíu og þá heimaleiki sem eftir eru. Síðan verður hægt að nálgast miðana í Laugardalshöll frá kl. 14.30 á leikdag. Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis: Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst skrifstofu KKÍ á sama tíma (Á milli 14:00 og 16:00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða á báða leikina sem eru eftir og síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll frá kl. 14:30 í Laugardalshöll á undan leik Íslands og Slóvakíu sem hefst kl. 14.30. Tölvupóstinn skal senda á kki@kki.is. Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars: „Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“ Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni á vef KKÍ - Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni á vef KKÍ - KKÍ.is |