S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
29.8.2012 | 10:36 | Kristinn | Landslið
EM2013: Staðan í A-riðli
Ísrael tóku á móti Serbíu í gær og sigruðu 89:76, sem er gríðarlega mikilvægt fyrir þá, þar sem baráttan um 2. sæti riðilsins virðist ætla að standa á milli þessara þjóða. Það þýðir að Svartfjallaland hefur unnið alla fimm leikina sína en á eftir koma þrjú lið sem hafa sigrað þrjá og tapað tveimur leikjum. Það eru Ísrael, Serbía og Eistland, þar sem Ísrael stendur best að vígi innbyrðis. Ísland er í 5. sæti riðilsins með einn sigur og fjögur töp og Slóvakía hefur tapað sínu fimm leikjum. Barátta er um efstu tvö sætin sem gefa beint sæti áfram en besta þriðja sætið í riðlunum sex mun einnig gefa sæti á lokakeppninni í Slóveníu næsta haust. |