S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
EM2013: UPPFÆRT · Svartfjallaland - Ísland í kvöld
Slanko Vrjanes mætti árið 2009 með sína 2.33 cm
Leikurinn er fjórði leikur liðanna í keppninni. Svartfjallaland býður frítt á leikinn og má því búast við dágóðum fjölda á leiknum, en sami háttur var á hjá Serbíu þegar þeir léku gegn Svartfjallalandi og þá mættu 18.000 manns á leikinn (sjá videó neðar). Ísland hefur unnið Slóvakíu en tapað fyrir Ísrael og Serbíu. Svartfjallaland hafa unnið alla sína fyrstu þrjá leiki, gegn Ísrael, Eistlandi og nágrönnum sínum í Serbíu, þar sem þeir sigruðu með því að skora flautukörfu frá miðju. Bein útsending á netinu og lifandi tölfræði í kvöld Leikurinn er í lifandi tölfræði hér í FIBA Europe-glugganum á KKÍ.is og við höfum fréttir af því að hann verði sýndur á ríkissjónvarpsstöð Svartfjallalands og ætti að vera hægt að sjá hann á netinu á www.rtcg.me og efst fyrir miðri síðu stendur „Nacionalni javni servis" og þar undir er ljósblár tengill sem á stendur „TV UZIVO" sem opnar beina útsendingu t.d í VLC Player sjálfkrafa. Eistland á mánudaginn Næsti heimaleikur Íslands verður á mánudaginn kemur kl. 19.15 í Laugardalshöllinni. Miðasala er á www.midi.is en frábær mæting hefur verið á fyrstu tvo heimaleikina og frábær körfubolti leikinn í Höllinni. Við hvetjum alla til að fjölmenna og styðja við bakið á landsliðinu. |