© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
18.8.2012 | 18:45 | hsj | Landslið
Íslenskur sigur í Levice
Núna er leik Slóvakíu og Íslands í Levice í Slóvakíu lokið með sigri Íslands 81-75 gegn Slóvakíu, staðan í hálfleik var 44-36 Íslandi í vil.

Pavel Ermolinskij meiddist í nára rétt fyrir leik og tók ekki þátt í leiknum, leikreyndasti leikmaður liðsins Logi Gunnarsson fór ekki með hópnum til Slóvakíu vegna veikinda. Það má því segja að íslenska liðið hafi verið án tveggja lykilleikmanna í þessum leik og því sigurinn enn sætari.

Byrjunarlið Íslands var: Jón Arnór, Hlynur, Ægir, Jakob og Haukur.

Íslenska liðið spilaði ágætlega í fyrri hálfleik en hefði mátt ná fleiri sóknarfráköstum. Slóvakar komu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik á meðan íslensku strákarnir hittu lítið sem ekkert og Slóvakar komust fljótlega yfir í þriðja leikhluta. Þegar þriðja hluta var lokið voru Slóvakar komnir með fimm stiga forsytu 59-54.

Íslensku strákarnir jöfnuðu leikinn strax í byrjun fjórða leikhluta og þegar rúmar tvær mínútur voru liðnar af síðasta leikhlutanum skoraði Jakob þriggja stiga körfu og kom okkar drengjum yfir í 59-62. Íslenska liðið hélt forystunni út leikinn en þeir komust mest í 63-75 en lokatölur urðu 75-81.

Flottur sigur strákanna sem hafa nú spilað tvo leiki í undanriðli EuroBasket 2013, unnið einn leik og tapað einum. Næsti leikur strákanna er á þriðjudaginn kl.19:15 þegar Ísrael kemur í heimsókn í Laugardalshöllina.

Stighæstu leikmenn Íslands:
Jón Arnór Stefánsson 28 stig, Haukur Pálsson 16 stig, Jakob Sigurðarson 15 stig, Hlynur Bæringsson 13 stig og 11 fráköst, Helgi Magnússon 7 stig og 11 fráköst og Ægir Þór Steinarsson 2 stig.

Jakob Örn Sigurðarson hafði þetta að segja að leik loknum „Ég er ánægður með hvað við byrjuðum betur strax í upphafi leiks sem vantaði hjá okkur í síðasta leik á móti Serbíu. Mjög mikilvægt þegar verið er að spila á útvielli að fá svona góða byrjun, gott flæði sem eykur sjálfstrautið hjá liðinu. Svo kom reyndar slæmur kafli í þriðja leikhluta eins og í leiknum á móti Serbíu, við hættum samt aldrei okkar leikskipulagi og baráttu og kláruðum leikinn mjög sterkt. Þessi sigur er mjög jákvæður fyrir okkur og sýnir samheldnina í hópnum. Ég hvet alla til að koma í Laugardalshöllina á þriðjudaginn þegar við mætum Ísraelum, við þurfum á stuðningi áhorfenda að halda.“

Ólafur Rafnsson forseti FIBA Europe og ÍSÍ var staddur á leiknum í Levice sem og Helena Sverrisdóttir landsliðskona sem leikur með Good Angels hér í Slóvakíu.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn Óskarsson tekur við viðurkenningu frá Hannesi Jónssyni formanni KKÍ í tilefni af 1000. leiknum sem Kristinn dæmdi á mótum á vegum KKÍ. Kristinn er aðeins þriðji dómarinn til að ná þessum merka áfanga en kollegar hans Jón Otti Ólafsson og Rögnvaldur Hreiðarsson hafa einnig náð að kljúfa 1.000 leikja múrinn.
Leikur nr. 1.000 var viðureign Vals og Reynis frá Sandgerði í 1. deild karla 4. janúar 2008.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið