S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
15.8.2012 | 13:23 | Kristinn | Landslið
EM2013: Frábær leikur gegn Serbum
Í gær hófst undankeppni EuroBasket 2013 með fyrsta leik mótsins og það var viðureign Íslands og Serbíu sem hóf mótið. Leikurinn endaði 78:91 fyrir Serbíu. Íslenska liðið heldur út í kvöld og leikur á laugardaginn gegn Slóvakíu úti og á næsta heimaleik á þriðjudaginn kemur, 21. ágúst, í Laugardalshöll kl. 19.15 gegn Ísrael. Í kvöld eru tveir leikir á dagskránni í A-riðli þar sem væntanlegir mótherjar okkar mætast. Hægt er að fylgjast með þeim leikjum í lifandi tölfræði á vef KKI.is í gegnum FIBA Europe tölfræðiglugganum sem þar er. Miðasala á leikinn er í fullu fjöri á www.midi.is en þar er hægt að kaupa miða á staka leiki sem og einn miða sem gildir á alla fimm heimaleikina á sérstöku tilboði. KKÍ hvetur alla landsmenn til að fjölmenna og sjá sterkt lið Ísraela sem léku á síðustu lokakeppni EM í Litháen sl. haust og styðja þar með við bakið á íslenska liðinu og horfa á skemmtilegan körfubolta. |