© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
7.8.2012 | 11:40 | Kristinn | Bikarkeppni KKÍ
Dregið í Lengjubikar karla og kvenna í dag
Í dag kl. 13.00 verður dregið í riðla í Lengjubikarnum 2012. Dregið verður í íþróttamiðstöðinni Laugardal á 3. hæð og eru allir velkomnir.

Lengjubikar karla:
Leikið er í fjórum riðlum og eru fjögur lið í hverjum riðli. Leikið er heima og að heiman. Efsta lið hvers riðils fer í undanúrslit eða Final Four. Dregið verður eitt lið úr hverjum styrkleikaflokki í hvern riðil.

Styrkleikaskipting:
1. styrkleikaflokkur: lið 1, 2, 3 og 4 sæti að lokinni deildarkeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan.
2. styrkleikaflokkur: lið 5, 6, 7 og 8 sæti að lokinni deildarkeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan.
3. styrkleikaflokkur: lið 9, 10, 11 og 12 sæti að lokinni deildarkeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan. Liðið sem vinnur 1. deild skipar 11 sæti og liðið sem kemur upp í úrvalsdeild eftir úrslitakeppni 1. deildar skipar 12 sæti.
4. styrkleikaflokkur: Þau 4 lið sem leika í 1. deild karla. Þau eru liðin tvö sem féllu úr úrvalsdeild og þau tvö lið sem þátt tóku í úrslitakeppni 1. deildar árið á undan en töpuðu í úrslitakeppni deildarinnar.

Liðin:
1. styrkleikaflokkur: Grindavík, KR, Þór Þ. og Stjarnan
2. styrkleikaflokkur: Keflavík, Snæfell, Tindastóll og Njarðvík
3. styrkleikaflokkur: ÍR, Fjölnir, KFÍ og Skallagrímur
4. styrkleikaflokkur: Haukar, Valur, Hamar og Breiðablik

Lengjubikar kvenna:
Leikið er í tveimur fimm liða riðlum. Ein umferð er í riðlinum. Efsta lið hvers riðils leikur til úrslita. Eitt lið verður dregið úr hverjum styrkleikaflokki.

1. styrkleikaflokkur: liðin sem léku til úrslita í úrslitakeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan.
2. styrkleikaflokkur: liðin sem töpuðu í undanúrslitum úrslitakeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan.
3. styrkleikaflokkur: lið 5 og 6 að lokinni deildarkeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan.
4. styrkleikaflokkur: lið 7 að lokinni deildarkeppni úrvalsdeildar tímabilið á undan ásamt liðinu sem vann 1. deild kvenna.
5. styrkleikaflokkur: liðið sem féll úr úrvalsdeild og það lið sem tapaði úrslitaeinvígi 1. deildar árið á undan.

Liðin:
1. styrkleikaflokkur: Njarðvík og Haukar
2. styrkleikaflokkur: Keflavík og Snæfell
3. styrkleikaflokkur: KR og Valur
4. styrkleikaflokkur: Fjölnir og Grindavík
5. styrkleikaflokkur: Hamar og Stjarnan

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Lið Hauka sem sigraði í 2. deildinni vorið 1981. Aftari röð frá vinstri: Rúnar Brynjólfsson formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, Höskuldur Björnsson, Ólafur Rafnsson, Kári Eiríksson, Kristján Arason, Eyþór Árnason, Þorteinn Aðalsteinsson, Sverrir Hjörleifsson, Birgir Örn Birgis þjálfari og Sigurbergur Steinsson stjórnarmaður. Fremri röð frá vinstri: Pálmar Sigurðsson, Sveinn Sigurbergsson, Hálfdan Markússon, Guðjón Þórðarson, Ingvar S. Jónsson og Einar Örn Birgisson sonur þjálfarans.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið