© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.7.2012 | 13:45 | Kristinn | FIBA
Undankeppni ÓL2012
Í gær fóru fram fyrstu leikirnir á undankeppni karla um laus sæti á ÓL2012 sem fram fer í Venesúela.

Rússar og Grikkir unnu sína leiki í gær örugglega, en spútnikliðið frá EM í Litháen sl. haust, lið Makedóníu, tapaði gegn liði Angóla nokkuð óvænt. Venesúela sigraði svo lið Nígeríu í lokaleik dagsins.

Í dag fara fram næstu leikir og þá munu mætast lið Kóreu og Dóminíska lýðveldisins, Makedóníu og Nýja Sjálands, Jórdaníu og Púertó Ríkó og Venesúela og Litháens.

Fyrir mótið var talið að Rússar, Grikkir og Litháar væru sigurstranglegustu liðin til að næla sér í síðustu þrjú sætin á ÓL2012.

Hægt er að sjá helstu tilþrif úr leikjunum á síðu FIBATV.com hérna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
A landslið karla sem tók þátt í C riðli Evrópukeppninnar í Hempstead árið  1977. Aftari röð frá vinstri: Birgir Örn Birgis þjálfari, Steinn Sveinsson sem var í landsliðsnefnd, Torfi Magnússon, Val, Bjarni Jóhannesson, KR, Pétur Guðmundsson, Val, Jón Jörundsson, ÍR, Bjarni Gunnar Sveinsson og Einar Bollason þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Gunnar Þorvarðarson, Njarðvík, Kári Marísson, Njarðvík, Kristin Jörundsson, ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson Val og Jón Sigurðsson, Ármanni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið