S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
1.7.2012 | 20:24 | Kristinn | FIBA
ÓL2012: Ljóst hvaða 12 lið leika hjá konunum
Þau fimm lið sem tryggðu sér sæti á þessu lokamóti voru Kanada, Króatía, Tékkland, Frakkland og Tyrkland. Þar með er ljóst hvaða 12 lið leika á ÓL2012 í London hjá konunum. Riðill A: Tékkland, Angóla, Bandaríkin, Króatía, Tyrkland og Kína. Riðill B: Rússland, Frakkland, Ástralía, Bretland, Brasilía og Kanada. Karlarnir hefja leik á morgun Lokakeppni karla hefst á morgun 2. júlí og hægt er að lesa um keppnina og fyrirkomulagið hérna en hægt verður að fylgjast með mótinu á vefsíðu FIBA.com. Á mótinu leika 12 landslið um þrjú laus sæti á leiknunum. Um er að ræða þau lönd sem urðu í sætum 3-6 á sínum heimsálfukeppnum. Sem dæmi lentu Rússar í þriðja sæti, en Spánn og Frakkland sem léku til úrslita, fara beint áfram. Keppni á ÓL2012 í körfubolta fer fram dagana 28.júlí til 12. ágúst. Tveim dögum seinna hefst svo veislan hér heima þegar Serbía mætir til landsins og Ísland hefur leik í undankeppninni fyrir EM2013 í Slóveníu. |