S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
6.6.2012 | 11:29 | Kristinn | Yngri landslið
Yngri landslið Íslands í Evrópukeppni í sumar
Ísland sendir U18 ára lið karla og U16 ára lið stúlkna í Evrópukeppni í sumar. Strákarnir leika í Bosníu en stúlkurnar leika á Gíbraltar. FIBA Europe hefur opnað vefsíður fyrir öll evrópumót yngri landsliða sem fram fara í sumar. Um er að ræða mótasíður fyrir U16, U18 og U20 karla og kvenna og fyrir A- og B-deildir. Á síðunum eru allar helstu fréttir, staða í riðlum ásamt úrslitum og leikjaplani. KKÍ mun setja inn lifandi tölfræði glugga á forsíðu www.kki.is þar sem hægt verður að fylgjast með leikjunum í beinni lýsingu. Heimasíða U18 karla í B-deild · Sarajevo 9.-19. ágúst. Heimasíða U16 stúlkna í C-deild · Gíbraltar 17.-22. júlí |