S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
19.5.2012 | 14:57 | Stefán | Yngri landslið
U16 kk: Lokuðu mótinu með sigri
Högni Fjalarsson var stigahæstur í dag
Úthald: Íslenska liðið, rétt eins og fyrri þrjá leikina byrjaði leikinn vel gegn Dönum og leiddu 24-17 að loknum fyrsta leikhluta. Að þessu sinni leið þeim vel við stýrið og héldu út allan leikinn. Ferskir fætur:Snorri Örn gerði miklar breytingar á byrjunarliði Íslands sem var svo skipað: Kári Jónsson, Daði Lár Jónsson, Kristinn Pálsson, Vilhjálmur Kári Jensson og Högni Fjalarsson. Heitur: Högni Fjalarsson valdi góðu skotin í fyrri hálfleik og var eitraður við teiginn. Kúvending: Lok þriðja leikhluta og framan af þeim fjórða var íslenska liðið einrátt á vellinum og gerði þá út um leikinn. Danir bitu frá sér á lokasprettinum en sigurinn var aldrei í hættu. Niðurstaða: Strákarnir hafa lokið keppni með einn sigur og þrjá tapleiki en Danir sem fengu skell gegn Íslandi í dag munu leika til úrslita um gullið á morgun, vandlifað í þessum heimi. Fjarverandi: Pétur Rúnar Birgisson lék ekki með vegna meiðsla en fyrstu þrjá leikina var hann byrjunarliðsmaður en íslenski hópurinn steig vel upp í dag í fjarveru Péturs. Stigahæstu menn Íslands í leiknum: Högni Fjalarsson var stigahæstur með 12 stig og 2 fráköst. Daði Lár Jónsson 10 stig, 5 fráköst, 3 stoðsendingar Kári Jónsson 8 stig, 5 fráköst, 2 stoðsendingar Atli Þórsson 8 stig og 4 fráköst Myndasafn úr leiknum á Karfan.is Tölfræði leiksins Umfjöllun um leikinn á Karfan.is |