S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
28.4.2002 | 21:38 | óój
Njarðvík, Haukar og Keflavík urðu síðustu Íslandsmeistarar tímabilsins
Ólafur Aron Ingason var með 21 stig, 5 stolna og 4 stoðsendingar fyrir Njarðvík í úrslitaleik drengjaflokks, Guðmundur Jónsson var með 14 stig og 8 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson var með 13 stig og 7 sóknarfráköst, Gunnar Örn Einarsson gerði 11 stig og Egill Jónasson var með 10 stig, 8 varin skot og 7 fráköst. Hjá KR gerði Steinar Magnússon 15 stig og þeir Jóel Sæmundsson (11 fráköst, 4 stoðsendingar), Sindri Sigurðsson og Jón Brynjar Óskarsson voru allir með 11 stig. Helena Sverrisdóttir var með 19 stig, 10 fráköst, 5 stolna og 5 stoðsendingar fyrir Hauka í úrslitaleik unglingaflokks kvenna og Pálína Gunnarsdóttir var með 17 stig. Báðar voru þær Íslandsmeistarar í þremur flokkum (9., 10. og unglingaflokki). Hjá Keflavík var Svava Ósk Stefánsdóttir með 18 stig, 12 fráköst og 5 varin skot og Guðrún Guðmundsdóttir var með 10 stig og 11 fráköst. Þá varð Keflavík Íslandsmeistari í 1. flokki karla með því að sigra Reyni S. í úrslitaleik 100-69. |