© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
14.2.2012 | 11:40 | Kristinn | Bikarkeppni KKÍ
Poweradebikarinn: Afhending miða fyrir handafa aðgönguskíreina
Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ sem ætla að mæta í Laugardalshöllina á bikarúrslitin í Poweradebikarnum eru minntir á að nálgast þarf miða á skrifstofu KKÍ á morgun miðvikudag eða á fimmtudaginn milli klukkan 13.00-15.00.


Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis:

Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta hringt á skrifstofu KKÍ á sama tíma til þess að láta taka frá fyrir sig miða sem síðan verður hægt að sækja í Laugardalshöllina á leikdag í afgreiðslu miða í anddyri.








Handhafi kortsins þarf að mæta í eigin persónu til þess að sækja miða gegn framvísun kortsins og persónuskilríkja.

Undanfarin ár hafa handhafar aðgönguskírteina/boðskorta getað fengið miða afhenda á leikstað við komuna á úrslitaleikina í Laugardalsöllinni. Í ár hefur verið ákveðið að allir þeir sem ætla sér að nýta sín aðgönguskírteini/boðskort verði að nálgast miða fyrirfram á skrifstofu KKÍ eins og segir til um í reglugerð um aðgönguskírteini.

Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum fyrir viðburðinn.

Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars:
„Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“

Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni hérna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá leik Hauka og ÍR í 1. deild kvenna í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði árið 1983.  Leikhlé hjá þjálfaranum, Kolbrúnu Jónsdóttur.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið