S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
10.2.2012 | 17:00 | Kristinn | Bikarkeppni KKÍ
Miðar og aðgönguskírteini/boðskort á Poweradebikarúrslitadaginn
Undanfarin ár hafa handhafar aðgönguskírteina/boðskorta getað fengið miða afhenda á leikstað við komuna á úrslitaleikina í Laugardalsöllinni. Í ár hefur verið ákveðið að allir þeir sem ætla sér að nýta sín aðgönguskírteini/boðskort verði að nálgast miða fyrirfram á skrifstofu KKÍ eins og segir til um í reglugerð um aðgönguskírteini. Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum fyrir viðburðinn. Handhafar aðgönguskírteina/boðskora geta sótt miðana á bikarúrslit karla og kvenna í Poweradebikarnum í eigin persónu á miðvikudag 15. febrúar og fimmtudaginn 16. febrúar í næstu viku milli klukkan 13-15 Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars: „Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ“ Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni hérna. |