© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.2.2012 | 16:10 | Kristinn | Aga- og úrskurðanefnd
Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar
Aga- og úrskurðanefnd hefur skilað niðustöðu sinni í máli sem upp kom í viðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í 8-liða úrslitum Poweradebikars kvenna sem fram fór þann 23. janúar síðastliðinn.

Hægt er að lesa greinagerð aga- og úrskurðanefndar hér fyrir neðan á .pdf formi:
Úrskurðurinn í heild sinni

Úrskurðarorð eru eftirfarandi:
„Kröfu kærða um frávísun á grundvelli þess að krafa hafi ekki uppfyllt ákvæði 7. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál og lágmarkskröfur um skýrleika kröfugerða á grundvelli laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, er hafnað.

Kröfu kæranda um að leikur kæranda og kærða í Powerade-bikar mfl. kvenna, sem leikinn var í íþróttamistöð Njarðvíkur mánudaginn 23. janúar 2012, verði leikinn að nýju er hafnað.

Fallist er á kröfu kærða um sýknu á grundvelli þess að leiðrétt mistök af hálfu dómara leiksins hafi fullnægt skilyrðum 44. gr. leikreglna í körfuknattleik.

Kröfu kærða um ómaksþóknun er hafnað.“


Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Afmælisbarn dagsins er Slavko Vranes leikmaður landsliðs Svartfjallalands sem trónir hér yfir aðra leikmenn á vellinum í leik gegn Íslandi í Laugardalshöllinni 17. september 2008. Slavko er 2.30 á hæð og og er fæddur 30. janúar 1983.  Hann mældi löglega hæð á körfunum í Höllinni með því að rétt upp hendina og bera saman við fingurna. Karfan var aðeins of há og var lækkuð að beiðni þjálfarans. Jakob Örn sem er þarna í treyju nr. 6 er til samanburðar 192 cm á hæð.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið