S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
4.12.2011 | 0:01 | Kristinn
Dregið í dag í riðla · Bein útsending
Það verður því spennandi að sjá að drættinum loknum með hvaða þjóðum landsliðin okkar munu leika í evrópukeppnum sumarsins og haustsins, en A-landsliðið mun keppa um að komast á EM í Slóveníu 2013. Ísland mun leika í riðli með fimm öðrum þjóðum, einni úr hverjum styrkleikaflokk. Leikið verður heima og að heiman dagana 15. ágúst til 11. september. Dregið verður í beinni útsendingu á vef www.fibaeurope.com á sunnudaginn kl. 09.45 að íslenskum tíma og verður byrjað að draga í keppni yngri landsliða þar sem við eigum fulltrúa í U16-keppni kvenna og U18-drengja áður en dregið verður í riðla A-landsliðanna. Styrkleikariðlarnir eru eftirfarandi: Stykleikaflokkur I: Serbía, Tyrkland, Þýskaland, Finnland, Georgía, Króatía. Stykleikaflokkur II: Úkraína, Búlgaría, Pólland, Bosnía, Ísrael, Ítalía. Stykleikaflokkur III: Svartfjallaland, Lettland, Belgía, Portúgal, Holland, Svíþjóð. Stykleikaflokkur IV: Tékkland, Eistland, Holland, Sviss, Austurríki, Aserbaídsjan. Stykleikaflokkur V: Hvíta Rússland, Slóvakía, Rúmenía, Albanía, Lúxemborg, Kýpur. Stykleikaflokkur VI: Ísland. |