S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
11.4.2000 | 9:55 | -
Keflavík Íslandsmeistari í 1. deild kvenna
Keflavík sigraði KR 58-43 í 5. leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna í KR-húsinu í gær. Keflavík hafði yfir allan leikinn, í hálfleik 29-25. Anna María Sveinsdóttir skoraði 16 stig fyrir Keflavík (8 fráköst, 4 stolnir, 3 stoðs.), Alda Leif Jónsdóttir skoraði 12 stig (4 fráköst, 4 stolnir, 4 stoðs.), Christie Cogley skoraði 8 stig (12 fráköst), Erla Þorsteinsdóttir 5 stig (7 fráköst) og Erla Reynisdóttir 7 stig. Hjá KR var Guðbjörg Norðfjörð stigahæst með 13 stig (7 fráköst), Hanna Kjartansdóttir skoraði 7 stig (8 fráköst), Deanna Tate skoraði 7 stig, (7 fráköst, 5 stolnir, 5 stoðs.) og Kristín Jónsdóttir skoraði 7 stig. Keflavík hefur því endurheimt titilinn sem KR vann af þeim í fyrra.
|