S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
15.4.2002 | 0:36 | óój
KR-stúlkur Íslandsmeistarar í 13. sinn
KR varð þar með fyrsta liðið í íslenskum körfuknattleik til þess að koma aftur eftir að hafa lent 0-2 undir í einvígi. Kristín Björk Jónsdóttir, fyrirliði KR, varð ennfremur fyrsta konan til að taka við Íslandsbikarnum tvö ár í röð síðan að úrslitakeppni kvenna var sett fyrst á laggirnar 1993. Kerfið fraus enn á ný og því er ekki hægt að sjá tölfræði leiksins eins og staðan er þegar þessi orð eru skrifuð en vonandi verður það ræst upp á nýjan leik í fyrramálið og þá ætti tölfræði leiksins að vera komin inn. Hér koma helstu tölurnar: Atkvæðamestar hjá ÍS: Meadow Overstreet 23 stig, 5 fráköst, 4 stoðsendingar Lovísa Guðmundsdóttir 16 stig, 9 fráköst Alda Leif Jónsdóttir 13 stig, 9 stoðsendingar, 8 fráköst, 4 varin, 4 stolnir Hafdís Helgadóttir 5 stig, 5 fráköst, 5 varin, 4 stoðsendingar Þórunn Bjarnadóttir 5 stig, 9 fráköst Atkvæðamestar hjá KR: Guðbjörg Norðfjörð 16 stig, 5 fráköst, 4 stoðsendingar, hitti úr 5 af 8 skotum og 4 af 4 vítum Helga Þorvaldsdóttir 16 stig, 4 fráköst Hildur Sigurðardóttir 15 stig, 4 fráköst, 4 stolnir Carrie Coffman 9 stig, 17 fráköst, 4 stoðsendingar Kristín Björk Jónsdóttir 8 stig Gréta María Grétarsdóttir 4 stig, 5 fráköst |