
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| Meistarar Meistaranna 2011    Árlegur leikur milli núverandi Íslandsmeistara og Bikarmeistara karla og kvenna fer fram á sunnudaginn. Kvennaleikurin hefst kl. 17.00. Keflavík er Íslands og bikarmeistari og mætir KRsem lék til úrslita gegn Keflavík í Poweradebikarnum. Hjá körlum, sem hefja leik kl. 19.15, mætast íslandsmeistarar KR og þar sem þeir eru tvöfaldir meistarar mæta þeir Grindavík sem eru fulltrúar Poweradebikarsins. Leikirnir fara fram í DHL-höllinni, en að venju er leikið á heimavelli Íslandsmeistara karla. Boðið verður upp á BBQ-grill frá kl. 16.00 og fyrir seinni leikinn einnig. Karlakór kaffibarsins mun syngja og veitingasala verður einnig á svæðinu. Allur ágóði af leiknum rennur til yngri landsliðsstarfs KKÍ að þessu sinni og gilda boðskort/aðgöngukort KKÍ ekki á þessum leik. Miðaverð er 1.500 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir 15 ára og yngri. Miðinn gildir á báða leikina. |