
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 16.9.2011 | 1:22 | Kristinn | FIBA EM í Litháen: Undanúrslitin á morgun    Í gærkvöldi lauk undanúrslitunum á EM í Litháen þegar Frakkar unnu Grikkland og Rússland lagði Serbíu. Það verða því Spánn og Makedónía og Frakkland og Rússland sem mætast í undanúrslitunum. Litháen lagði Slóveníu einnig í dag og tryggðu sér þar með að leika um sæti 5.-6. og réttinn til að leika um sæti á ÓL2012. Á morgun kemur í ljós hvort Grikkland eða Serbía mun mæta heimamönnum í leiknum um 5. sætið. Litháar eru gríðarlega miklir áhugamenn um körfubolta og er nánast fullt í nýju höllinni í Kaunas á hverjum leik en hún tekur 17.500 manns í sæti, og var byggð sérstaklega fyrir keppnina. Vel er staðið að öllum þáttum og umgjörð leikja með því besta sem gerist og leikirnir frábær skemmtun, enda bestu leikmenn Evrópu með sínum landsliðum á mótinu. |