
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 13.8.2011 | 23:21 | Stefán | Mótahald Lituanica meistari annað árið í röð    Liðsmenn Lituanica sigurreifir að leik loknum Úrslit Sumardeildarinnar fóru fram í dag þar sem lið Lituanica fór með sigur af hólmi í rosalegum úrslitaleik gegn Glímufélaginu. Lokatölur 21-17 fyrir Lituanica sem vann einnig í fyrra. Leikið var á nýja Sportcourtvellinum í Garðabæ. Ágætis stemning var á svæðinu en því miður komu þrjú af þeim átta liðum sem áttu sæti í úrslitum og því var aðeins einn leikur í 8-liða úrslitum. Team DC vann auðveldan sigur á Ravens 21-6. Í undanúrslitum lagði Glímufélagið Team DC 21-11 og í hinni undanúrslitaviðureigninni vann Lituanica Gullna Örninn 21-17. KKÍ vill óska Lituanica til hamingju með sigurinn og liðunum sem tóku þátt í sumar. En deildin verður á sínum stað næsta sumar. Hægt er að sjá myndir frá úrslitadeginum á Facebook síðu KKÍ. |