ÍS og KR hefja í kvöld einvígi sitt um
Íslandsbikar kvenna 2002 en þetta er í fyrsta skiptið í tíu ára sögu úrslitakeppni kvenna sem að tvö Reykjarvíkurfélög spili til úrslita. ÍS er að komast í lokaúrslitin í fyrsta sinn en KR er aftur á móti að ná því sjöunda árið í röð. Fyrsti leikurinn fer fram á heimavelli deildarmeistara ÍS í Kennaraháskólanum og hefst hann klukkan 19:30. Það má búast við spennandi leik og harðri baráttu en það munaði aðeins tveimur stigum á liðunum á sama stað fyrir 22 dögum þegar
65-63 sigur Stúdína tryggði þeim deildarmeistaratitilinn. Undir greinum á KKÍ-síðunni má finna ýmsar upplýsingar um lokaúrslit kvenna. Það má fyrst nefna stutt
ágrip af sögu lokaúrslitakvenna 1993-2001, þá
ýmsar staðreyndir og topplistar úr sögu lokaúrslitanna 1993-2001 og að lokum má finna
tölfræðisamanburð á innbyrðisleikjum ÍS og KR en liðin leika sinn sjötta leik á tímabilinu í kvöld. Ekki má síðan gleyma heildartölfræði ÍS í
deild og í
úrslitakeppni sem er á úrslitasíðum KKÍ líkt og heildartölfræði KR í
deild og í
úrslitakeppni.