© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.3.2002 | 22:30 | óój
Flautukarfa Grétu kom KR í úrslitin
Gréta María Grétarsdóttir, til vinstri, tryggði KR-stúlkum sæti í lokaúrslitum um Íslandmeistaratitil kvenna í kvöld þegar að hún skoraði þriggja stiga körfu um leið og lokaflautið gall og kom KR yfir, 63-62, í fyrsta og eina skiptið yfir í leiknum. Keflavík hafði sex stiga forskot eftir fyrsta leikhluta, 9-15, leiddi 32-33 í hálfleik og hafði loks fimm stiga forskot, 42-47, fyrir síðasta leikhlutann. En KR-stúlkur gáfust ekki upp og þrátt fyrir að vera komnar 14 stigum undir, 48-62, lokuðu þær vörninni og tryggðu sér leikina gegn Stúdínum með því að skora 15 síðustu stig leiksins.
Gréta María skoraði 7 þessara fimmtán stiga og stal að auki fjórum boltum í síðasta leikhlutanum. Það vakti nokkra athygli að það voru dæmd tíu skrefadómar í leiknum, einn á KR og heilir níu á Keflavík þar af tveir á lokamínútu leiksins.

Fyrsti úrslitaleikur ÍS og KR í lokaúrslitum 1. deildar kvenna fer fram þriðjudaginn 2. apríl en þetta er í fyrsta sinn í sögu úrslitakeppni kvenna sem tvö Reykjarvíkurfélög mætast í úrslitum.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá undanriðli Evrópukeppni U-20 landsliða í Evora í Portúgal árið 1993.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið