S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
1.6.2011 | 8:00 | FÍR
Norðurlandamót yngri landsliða í Solna 1. – 5. júní.
Það var stór hópur sem flaug með Iceland Express frá Íslandi í morgun en um 110-120 leikmenn, þjálfarar, fararstjórar, dómarar, sjúkraþjálfarar og fjölmennur hópur foreldra eru með í för. Til að halda kostnaði niðri ákvað Iceland Express að fljúga þessum myndarlega hópi beint til Stokkhólms. Þetta er 9. árið sem mótið fer fram með þessum hætti. Það eru U-16 ára og U-18 ára landslið karla og kvenna sem taka þátt. Ísland sendir lið í öllum aldursflokkum. Upplýsingar um liðsskipan landsliðanna og hópmyndir af liðunum má finna í eftirtöldum hlekkjum: U-16 ára lið kvenna U-18 ára lið kvenna U-16 ára lið karla U-18 ára lið karla Dómarar frá Íslandi eru: Sigmundur Már Herbertsson Davíð Hreiðarsson Davíð Tómasson Jakob Árni Ísleifsson Kristinn Óskarsson - FIBA Instructor Aðalfararstjóri er Anna María Sveinsdóttir S: 892 3034 Stefán Þór Borgþórsson mótastjóri KKÍ verður einnig með í ferðinni og mun skrifa fréttir og taka myndir. Hægt er að hafa samband við hann ef þið viljið fá myndir og eða aðrar upplýsingar. S: 697-3960 Slóð á mótið Einnig verður fréttaflutningur á heimasíðu sambandsins kki.is |