S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
24.3.2002 | 14:57 | óój
Njarðvík Íslandsmeistari í 7. flokki karla
Njarðvík vann 15 af 16 leikjum Íslandsmótsins í ár og er vel að sigrinum komið. Njarðvíkurstrákarnir gerðu alls 242 stig í leikjum fjórum úrslitaumferðinni sem gera 60,5 stig að meðaltali í leik og 100 stigum fleiri en andstæðingar þeirra skoruðu á þá. Úrslit lokaumferðarinnar sem fram fór í Laugardalshöll og Smáranum í dag og í gær má finna hér. Njarðvíkurstrákarnir vörðu Íslandsmeistaratitilinn frá því í fyrra en þá urðu þeir minniboltameistarar í sama árangi. Njarðvík vann öruggan sigur á Keflavík, 68-37, í síðasta leiknum þrátt fyrir að hafa misst fyrirliða sinn Rúnar Erlingsson, út puttabrotinn í leiknum á undan. Þjálfarar strákanna eru þeir Atli Geir Júlíusson og Brenton Birmingham. Íslandsmeistarar Njarðvíkur og stig þeirra í úrslitaumferðinni: Ólafur Ormsson 1, Jóhann Eggertsson 9, Kristinn Gíslason 4, Ragnar Ólafsson 36, Ingvar Jónsson 31, Rúnar Erlingsson, fyrirliði, 36 (í 3 leikjum), Hjörtur Einarsson 88, Freyr Guðmundsson 12, Anton Pálsson 3 og Elías Kristjánsson 22. |