S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
23.5.2011 | 9:21 | Kristinn | Yngri landslið
Styttist í Norðurlandamót yngri landsliða
Fjögur landslið halda utan á miðvikudaginn eftir viku, U16 liða drengja og stúlkna og U18 lið karla og kvenna. Þessa dagana eru liðin að æfa og í lokaundirbúningi fyrir brottför en í vikunni og um næstu helgi verða þau öll við æfingar. U18 ára liðin eiga fyrsta leik sinn á miðvikudagskvöldinu og leika síðan aftur daginn eftir. U16 ára liðin leika sína fyrstu tvo leiki hvort á fimmtudeginum þannig að þann daginn verða sex leikir hjá íslensku liðunum á mótinu. Liðin leika svo áfram á föstudegi og laugardegi og sunnudagurinn er undirlagður fyrir úrslitaleiki, en leikið eru um 3. sætið og til úrslita. KKÍ verður í Solna og mun flytja fréttir og myndir frá öllum leikjum okkar liða á mótinu á kki.is. |