
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
1  | 
	||||||
2  | 
		3  | 
		4  | 
		5  | 
		6  | 
		7  | 
		8  | 
	
9  | 
		10  | 
		11  | 
		12  | 
		13  | 
		14  | 
		15  | 
	
16  | 
		17  | 
		18  | 
		19  | 
		20  | 
		21  | 
		22  | 
	
23  | 
		24  | 
		25  | 
		26  | 
		27  | 
		28  | 
		29  | 
	
30  | 
		
| 
 22.3.2011 | 18:47 | FÍR 
  Þjálfaranámskeið  - Frestur rennur út á miðnætti á morgun 
   
    Um er að ræða evrópskt þjálfaranám sem spannar 3 sumur og hefst nú í sumar. Umsækjandi þarf að skuldbinda sig í þrjú ár sem þátttakandi í þessu námi. Umsækjandi greiðir kostnaðinn sjálfur en getur sótt um styrk í hina ýmsu sjóði vegna námsins, s.s. fræðslusjóð KKÍ, þjálfarasjóð ÍSÍ, endurmenntunarsjóð KÍ fyrir þá sem þar eru o.fl. KKÍ á eitt öruggt pláss á námskeiðinu en möguleiki á öðru er fyrir hendi en það kemur í ljós þegar allar þjóðir hafa sent umsóknir sínar inn. Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Friðriki Inga Rúnarssyni, framkvæmdarstjóra KKÍ með því að senda honum tölvupóst á fridrik.runarsson@kki.is. Umsóknum skal skilað til skrifstofu KKÍ eða á netfangið kki@kki.is fyrir 23. mars næstkomandi. Umsækjendur þurfa að taka fram þjálfaramenntun, þjálfarareynslu og aðra menntun sem gæti nýst umsækjanda. Upplýsingar um námskeiðið má finna hér að neðan: Almennar upplýsingar Hvað er farið í á hverju stigi Dagatal námskeiða Kennarar á námskeiðunum  |