S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
15.3.2011 | 10:30 | Kristinn | NCAA háskólaboltinn
NCAA úrslitakeppnin af stað í kvöld
Í dag er komið að því sem körfuboltaáhugamenn um allan heim bíða eftir árlega því í kvöld hefst „March-Madness" í háskólaboltanum. NCAA úrslitakeppnin hefst á fjórum leikjum um tvö laus sæti með umspili í kvöld. Eftir það verða 64-lið komin áfram sem hefja leik 17. og 18. mars. Að venju eru nokkur lið talin sigurstranglegust í þessu geysisterka móti en það eru helst nefnd lið Ohio State, Kansas og Duke, sem eru núverandi meistarar og liðið sem Haukur Helgi og félagar í Maryland léku með í ACC-riðlinum í vetur. Á hverju ári er svo eitt lið sem kemur mest á óvart og er skemmst að minnast á ævintýri liðs Butler í fyrra sem tapaði með tveimur stigum gegn Duke í úrslita leiknum. Ítarlegar upplýsingar um mótið, greiningu á hverjum landshluta og þáttum eins og of- og vanmetnustu liðunum, bestu leikmönnunum, leikmönnum sem vert er að fylgjast með og fleira skemmtilegt má finna á vef Yahoo Sports. |