S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
10.3.2011 | 21:17 | Kristinn | Iceland Express-deildin, Mótahald
Iceland Express-deild karla
Úrslitakeppnin 2011 klár Nú er lokið síðustu umferð Iceland Express-deildar karla og þar með ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitunum. Haukar og Fjölnir kepptu um að ná síðasta sætinu í úrslitakeppninni en bæði lið unnu sína leiki og þar með fóru Haukar í úrslit þar sem Fjölnir þurfti að treysta á að þeir töpuðu sínum leik. KR hafði betur gegn deildarmeisturum Snæfells og tryggðu sér þar með 2. sætið. Keflavík og Grindavík börðust einnig um sama sæti og þar hafði Keflavík betur í suðurnesjaslagnum. Þar sem KR var með betri stöðu innbyrðis úr leikjum þeirra í vetur eru þeir í 3. sæti. Viðureignir í 8-liða úrslitunum Sæti í deild í sviga Snæfell (1) · Haukar (8) KR (2) · Njarðvík (7) Keflavík (3) · ÍR (6) Grindavik (4) · Stjarnan (5) 8-liða úrslitin hefjast á fimmtudag og föstudag og verður það gefið út á morgun hvaða lið leika á hvaða degi. Lokastöðuna í deildinni má sjá hérna |