
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 30.1.2011 | 22:00 | Kristinn | FIBA Gestgjafarnir og Evrópumeistararnir saman í riðli   Ólafur Rafnsson, forseti FIBA Europe, sagði það vel við hæfi að hefja nýtt keppnisfyrirkomulag lokakeppninnar í Litháen þar sem körfubolti er vinsælasta íþrótt landsins og markmið stækkun lokakeppninnar er einmitt að gera flaggskip körfuboltans í Evrópu sem glæsilegast. Nú í fyrsta sinn taka 24 þjóðir þátt í lokamótinu í stað 16 áður. Mótið hefst í byrjun september. Fyrsta umferð verður leikin í Alytus, Šiauliai, Panevėžys og Klaipėda. Önnur umferð fer fram í Vilnius og úrslitin svo í Kaunas. Riðlar í fyrstu umferð EM 2011: A-riðill: Spánn Tyrkland Litháen Bretland Pólland og lið úr öðru sæti í umspili B-riðill: Serbía Frakkland Þýskaland Ísrael Ítalía Lettland C-riðill: Grikkland Króatía Svartfjallaland Makedónía Bosnía og lið úr fyrsta sæti í umspili D-riðill: Slóvenía Rússland Belgía Georgía Búlgaría Úkraína Vefur keppninnar: www.eurobasket2011.org |