© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.3.2002 | 22:52 | ÓÓJ
Haukar urðu tvöfaldir bikarmeistarar í dag
Haukar urðu tvöfaldir bikarmeistarar í körfu í dag þegar fyrri dagur bikarúrslita yngri flokkanna fór fram á Ásvöllum. Haukar unnu 9. og 10. flokk kvenna en Njarðvík vann sigur í 10. flokki karla og KR vann unglingaflokk karla. Það eru 19 ár síðan Haukar unnu bikarinn í kvennaflokki hjá yngri flokkunum og stelpurnar í Haukum bættu heldur betur fyrir þá bið með því að verða tvisvar bikarmeistarar á þremur klukkutímum og það á sínum heimavelli.

Helena Sverrisdóttir leiddi bæði lið Hauka til sigurs en hún var valin maður leiksins í báðum úrslitaleikjunum. Helena skoraði 25 stig, tók 21 frákast og gaf 7 stoðsendingar í 53-27 sigri Hauka á Njarðvík í 9. flokki og svo náði hún þrefaldri tvennu í 67-36 sigri Hauka á b-liði Keflavíkur í 10. flokki en Helena skoraði 32 stig í þeim leik, tók 14 fráköst, stal 10 boltum og gaf 7 stoðsendingar.

Jóhann Árni Ólafsson var valinn maður leiksins þegar Njarðvíkingar unnu 66-56 sigur á ÍR en þetta var annað árið í röð sem þessi lið mætast í þessum árgangi en Njarðvíkingar unnu einnig í fyrra, þá 53-51. Jóhann skoraði 29 stig, tók 13 fráköst, gaf 5 stoðsendingar, varði 5 skot og stal 5 boltum í úrslitaleiknum en þetta var fyrsti bikarsigur Njarðvíkur í þessum flokki í tíu ár.

KR-ingar unnu að lokum unglingaflokk karla eftir 86-69 sigur á Stjörnunni í úrslitaleik og það þrátt fyrir að Jóni Arnóri Stefánssyni hafi verið vikið út úr húsi í fyrri hálfleik. Hjalti Kristinsson, leikmaður unglingaflokks KR var valinn maður leiksins en hann skoraði 18 stig, tók 8 fráköst og hitti úr öllum 8 vítum sínum í leiknum.

Það má finna allt um sögu bikarúrslitanna hér en úrslit dagsins hafa þar verið uppfærð en seinni dagurinn fer fram á Ásvöllum á morgun og þá ráðast úrslitin í 9.flokki karla, 11. flokki karla, Drengjaflokki og Unglingaflokki kvenna.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
8.-10. flokkur stúlkna hjá Val að undirbúa sig fyrir leik á móti í Gautaborg í Svíþjóð. Valur vann leikinn 26-24. Liðið komst í b-úrslit á mótinu en gat ekki spilað úrslitaleikinn þar sem að ferðaskrifstofa liðsins gerði ekki ráð fyrir að liðið færi svona langt. Stelpurnar þurftu því að halda heim til Íslands áður en mótið kláraðist.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið