S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
15.1.2011 | 17:04 | Stefán
Berglind og Jóhann unnu paraskotkeppnina
Nýr leikur var kynntur til sögunnar á Stjörnudegi kvenna en það var paraskotkeppni. Fjögur lið tóku þátt og áttu þau öll sameiginlegt að keppendur eru körfuboltapör. Allt um paraleikinn hér. Pörin voru: Margrét Sturlaugsdóttir og Falur Harðarson. Pálína Gunnlaugsdóttir og Kjartan Kjartansson, Hafdís Hafberg og Marel Guðlaugsson og fjórða parið var Berglind Anna Magnúsdóttir og Jóhann Ólafsson. Tvö lið fóru í úrslit en úrslitin fóru fram í hálfleik. Svo fór að Berglind Anna Magnúsdóttir og Jóhann Ólafsson úr Grindavík stópu uppi sem sigurvegarar á 34 sekúndum í úrslitum. Forkeppni: Pálína og Kjartan 31 sekúndur BRAUTARMET Berglind og Jóhann 36 sekúndur Margrét og Falur 41 sekúndur Hafdís og Marel 47 sekúndur Úrslit: Berglind og Jóhann 34 sekúndur Pálína og Kjartan 43 sekúndur |