© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
14.1.2011 | 10:53 | Kristinn | Landslið
Fyrirlestrar fyrir yngri kvennalandsliðin
Á morgun fer fram Stjörnuleikshátíð kvenna í Ásgarði. Í tilefni af því hafa öll yngri stúlknalandslið KKÍ, U15, U16 og U18, verið boðuð á fund og fyrirlestur í félagsheimili Stjörnunnar.

Margir áhugaverðir fyrirlestrar verða í boði varðandi afreksstarf og því sannarlega sérstakur dagur á morgun sem er tileinkaður kvennakörfuboltanum.

Dagskrá:

11:30
Opnun fundarins. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ og Þóra Melsted formaður unglinganefndar KKÍ.

11:45
Anna María Sveinsdóttir afrekskona í körfubolta (besti leikmaður 20. aldarinnar, sex sinnum valin besti leikmaður úrvaldsdeildar kvenna, 60 A-landsleikir) fjallar um kvennakörfuboltann frá hennar sjónarhorni.

12:15
Erlendir leikmenn koma og segja frá sinni reynslu sem atvinnumenn: Jacquline Adamshick, Keflavík, Jaleese Butler, Hamar og Natasha Harris, Fjölni.

13:00
Hafrún Kristjánsdóttir íþróttasálfræðingur með fyrirlestur.

13:45
Fundarslit

14:30
Stjörnuleikshátíð hefst
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Unglingalandslið Íslands sem tók þátt í Evrópukeppninni í Antalya í Tyrklandi árið 1976. Frá vinstri: Steinn Sveinsson, fararstjóri, Örn Þórisson, Fram, Birgir Thorlacius, Fram, Þorsteinn Bjarnason, Keflavík, Ómar Þráinsson, Fram, Þórir Einarsson, Fram, Pétur Guðmundsson, Val, Þorvaldur Geirsson, Fram, Óskar Baldursson, Breiðabliki, Erlendur Markússon, ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson, Val, Sigurjón Ingvarsson, Fram og Gunnar Gunnarsson, þjálfari.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið