S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
11.12.2010 | 17:59 | Stefán | Mótahald
Eldri landsliðsmennirnir lögðu Celeb-liðið öðru sinni
Í fyrra mættust þessi lið þar sem landsliðsmennirnir fóru með auðveldan sigur af hólmi. Í ár var annað upp á teningnum og þurftu landsliðsmennirnir að hafa mikið fyrir hlutunum. Celeb-liðið var búið að fá nýja liðsmenn en þeir Guðmundur Benediktsson, Hjörvar Hafliðason og Jogvan Hansen voru nú komnir í búning til að hjálpa félögum sínum og einnig fékk Celeb-liðið Egil Jónasson leikmann Njarðvíkur lánaðan til að hækka meðalhæðina aðeins. Steindi JR. forfallaðist á síðustu stundu en lofaði að hann myndi vera með næst. Í byrjun voru Celeb-liðar beittir og skoruðu nokkrar körfur. Ljóst var að þeir ætluðu ekki að láta valta yfir sig aftur og reyndu eins og þeir gátu að halda í við landsliðsmennina. Að lokum fór þó þannig að landsliðsmennirnir höfðu sigur 34-26 í leik sem var mun jafnari heldur en sá í fyrra. Stigahæstur hjá landsliðsmönnunum var Jón Kr. Gíslason með 12 stig en þau komu öll úr þriggja-stiga skotum. Hjá Celeb-liðinu var Auðunn Blöndal með 7 stig. Liðsmenn beggja liða í leikslok. |