S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
30.8.2010 | 14:30 | Kristinn | FIBA
EM 2011: Keppni í A-deild lokið
Dusko Vujosevic, Slavko Vranes og félagar eru á leið á EM 2011 í Litháen
Tíu þjóðir eru búnar að tryggja sér sæti í lokakeppninni en það eru þær þjóðir sem taka þátt á HM um þessar mundir. Spánn, Serbía, Grikkland, Slóvenía, Frakkland, Króatía, Þýskaland, Litháen, Rússland og Tyrkland fara beint á EM. Íslandsvinirnir í liði Svartfjallalands sem léku gegn okkar mönnum í B-deild fyrir tveim árum náðu takmarki sínu og sigruðu sinn riðil og eru komnir áfram ásamt Bretum og Belgum sem urðu í fyrstu sætum sinna riðla. Tvö af þeim þrem liðum sem urðu í öðru sæti áttu möguleika á síðustu sætunum að þessu sinni og það urðu Makedónía og Ísrael sem fara áfram á EM en Georgíumenn sitja eftir með sárt ennið með slakasta árangur liða í öðru sæti og þurfa að fara í umspil. Þar leika þær tíu þjóðir sem kepptu núna og komust ekki áfram núna um síðasta sætið í keppninni. Frakkar komust á EM síðasta sumar í Póllandi með þessum hætti og stóðu sig frábærlega á lokakeppninni þannig að ekki er öll von úti fyrir Georgíumenn sem svekkja sig sjálfsagt enn yfir sigurkörfunni sem Jakob Örn skoraði gegn þeim í Laugardalshöll en það má segja að þá fyrst hafi ófarir þeirra hafist, meðal annars varð það til þess að þeir komust ekki áfram það árið í A-deild. |