S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
30.1.2002 | 11:44 | bl
Hinn nýi dómstóll KKÍ kveður upp sinn fyrsta úrskurð
Eins og kunnugt er var dómstólakerfi KKÍ breytt á síðasta ársþingi. Hinn nýi dómstóll fékk fyrir skömmu sitt fyrsta mál til meðferðar og kvað upp úrskurð sinn í gær.
Það var körfuknattleiksdeild Breiðabliks sem krafðist þess að leikur Breiðabliks C og Stjörnunnar B í 2. deild karla yrði dæmdur ógildur og Breiðbliki yrði dæmdur sigur í leiknum. Rökstuðningur Breiðabliks fyrir kröfu sinni var sá að Stjarnan hefði gerst brotleg við reglugerð um körfuknattleiksmót með því að nota leikmann sem var einn af 7 leikjahæstu leikmönnum A-liðs meistaraflokks félagsins. Bogi Hjálmtýsson, dómari í dómstól KKÍ, kvað upp dóminn. Dómsorð er að Stjarnan B telst hafa tapað leiknum gegn Breiðabliki C með stigatölunni 20-0 og greiði að auki 10. þúsund króna sekt til KKÍ. Ekki er ljóst hvort Stjarnan mun áfrýja þessum úrskurði til æðra dómsstigs. |