S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
30.6.2010 | 10:12 | Kristinn
Golfmót Körfuboltamanna · Úrslit
þetta í þrettánda sinn sem það er haldið. Nú var það haldið á Víkurvelli í Stykkishólmi en þar fór einnig fyrsta mótið fram 1998. Þá voru keppendur 13 en nú voru þeir 66 og komust færri að en vildu, því miður. Þar sem mótið var haldið nú á níu holu velli þá er takmarkað hvað er hægt að hafa marga í mótinu þar sem allir eru ræstir út í einu. Margra ára uppbyggingu Víkurvallar er nú lokið ( völlurinn var síðan vígður daginn eftir) og þótti því tilhlíðilegt að halda mótið þar og einnig í tilefni þess að Snæfell tók báða stóru titlana í vetur. Glæsilegur Víkurvöllur skartaði sínu fegursta á keppnisdegi og var almenn ánægja með völlinn. Úrslit án forgjafar: Jóhann P. Andersen · 29 punktar Björgvin Ragnarsson · 27 punktar Finnur Jónsson · 26 punktar Úrslit með forgjöf: Sveinn Arnar Davíðsson · 41 punktur Davíð Þór Jónsson · 36 punktar Ingvar S. Jónsson · 33 punktar Fern nándarverðlaun voru veitt og svo var einngi best klæddi keppandinn verðlaunaður sem var Hlynur E. Bæringsson. Að lokum var fjöldi verðlauna dregin úr skorkortum keppanda. Verðlaun gáfu m.a. eftirtaldir: Góa , Grillbúðin, Strendingur, VÍS, er þeim þakkað fyrir stuðninginn. Mót þetta hefur vaxið smátt og smátt með árunum og hefur skapað sér fastan sess hjá körfuboltakylfingum og er afar ánægulegt tækifæri fyrir gamla jafnt sem unga körfuboltamenn að hittast á öðrum vettfangi en á körfuboltavellinum og rifja upp góðar stundir. |