
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 12.5.2010 | 7:00 | Kristinn | Yngri landslið NM hópurinn að leggja í hann   Dómarar frá Íslandi eru: Sigmundur Már Herbertsson, Björgvin Rúnarsson, Davíð Hreiðarsson og Davíð Tómasson. Kristinn Óskarsson verður einnig með í för en hann mun sitja fundi með kollegum sínum frá hinum Norðurlöndunum en undanfarin ár hefur samvinna þjóðanna aukist til mikilla muna varðandi fræðslu í dómaramálum. Kristinn Óskarsson hefur verið tilnefndur af KKÍ til FIBA Europe sem yfirleiðbeinandi dómara á Íslandi. Einn leikmaður, Haukur Helgi í U18, kemur frá Bandaríkjunum, þar sem hann er við nám, og heldur svo vestur yfir hafið aftur að móti loknu. Einnig mun Hrafnhildur úr U16 liðinu fara í bekkjarferðalag til Danmerkur á mánudeginum, en annars munu allir ferðast og dvelja saman í Solna á meðan mótið stendur yfir. Það er því ljóst að það verður mikið fjör á Norðurlandamótinu 2010, þar sem framundan eru að minnsta kosti 16 leikir á fjórum dögum, auk úrslita ef til þeirra kemur á sunnudegi og það hefur sýnt sig að þeir hópar sem hafa farið undanfarin ár hafa staðið sig frábærlega, sýnt samheldni á mótinu og verið landi og þjóð til sóma. Áfram Ísland! |