S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
21.4.2010 | 15:09 | FÍR
Kennsla á meistarastigi í íþróttafræði
Það er alltaf hægt að læra meira
Tvær nýjar meistaranámsbrautir MSc í þjálffræði íþrótta – Exercise Science and Coaching MEd í íþrótta- og uppeldisfræði – Sport Education Háskólinn í Reykjavík hefur á örfáum árum skapað sér sess sem leiðandi afl í menntun íþróttafræðinga til BSc gráðu hér á landi. Með meistaranáminu verður mikilvægt skref tekið til að auka sérhæft námsframboð og rannsóknir á sviði íþróttafræða. Í fyrsta sinn á Íslandi gefst tækifæri til að mennta sig til meistaraprófs í íþróttaþjálfun, en MSc í þjálffræði íþrótta – Exercise Science and Coaching er námsbraut sem er sérstaklega hönnuð fyrir þá sem hafa áhuga á íþróttaþjálfun og rannsóknum íþrótta. MEd í íþrótta- og uppeldisfræði – Sport Education er námsbraut sem ætluð er þeim sem vilja sérhæfa sig í íþróttakennslu og lífsstílsfræði. Kynningarfundur um meistaranámið verður mánudaginn 26. apríl, kl. 16:00-17:00 í Háskólanum í Reykjavík að Menntavegi 1, Nauthólsvík, í stofu M 1.01 BELLATRIX (innst á ganginum til vinstri á fyrstu hæð). Á fundinum gefst áhugasömum kostur á að kynna sér námið betur og ræða við kennara og starfsfólk íþróttafræðisviðs HR. Upplýsingar um námið er einnig að finna á heimasíðu skólans hér |