S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
24.3.2010 | 5:00 | Kristinn
Æfingabúðir hjá Val
Boðið verður upp á tvo aldursflokka, yngri og eldri. Yngri iðkendur fæddir 1998-2003 (6-11 ára) eru frá kl. 09:00-11:30. Ráðlegt er að senda börnin með smávegis næringu með á æfingarnar en hlé verður gert á æfingum milli 10:00-10:20 til þess að nærast. Eldri iðkendur fæddir 1993-1997 (12-16 ára) eru frá kl. 13:00-15:00 Æfingabúðirnar munu einkennast af grunn- og tækniþjálfun þar sem lögð verður áhersla á einstaklinginn. Æfingabúðir yngri iðkenda munu þó einnig einkennast af leikjum og skemmtun en á síðasta degi æfingabúðanna verður haldið mót milli iðkenda í hvorum aldurshópi fyrir sig. Þátttökugjald er kr. 3.000 krónur sem greiðist á fyrsta degi æfingabúðanna. 50% Vinaafsláttur: Ef þú ert Valsari og langar að bjóða einhverjum utan félagsins með þér í æfingabúðirnar þá er það alveg sjálfsagt. Ef þú færð einhvern vin með þér í æfingabúðirnar þá borgið þið báðir/báðar einungis hálft gjald. Skráningar berist til Lýðs á netfangið Lydur06@ru.is eða í síma 694-4033. Vinsamlegast gefið upp nafn og kennitölu iðkenda sem og nafn, kennitölu og gsm-símanúmer foreldra. |